Fréttir
Humarhatid_1995_0
Hafnarsvæðið
Húmarhátíð 1995 (úr myndasafni)

30.05.2012 Fréttir

Mannlífsþáttur RUV um Hafnarvík-Heppu kynntur í Nýheimum

Síðastliðinn föstudag var haldin kynningarfundur um fyrirhugaðan mannlífsþátt sem Ríkissjónvarpið stefnir á að taka upp 15.-16. júní n.k. 

Megin inntak og hugmynd að verkefninu er að gera grein fyrir umbreytingu á ákveðnu svæði, kynnast því sem er að gerast innan þess og um leið kynna mann- og menningarlíf þess samfélags sem tekur þátt í verkefninu.  RÚV hefur fjóra hönnuði á sýnum snærum sem koma að hugmyndavinnu fyrir svæðið og leggja einnig til hugmyndir fyrir áhugasama innan þess.  Fundurinn var ágætlega sóttur og mættu um 30 manns á fundinn.

Haukur Ingi Einarsson gerði grein fyrir aðdraganda verkefnisins og helstu verkþáttum sem snúa að sveitarfélaginu.  Þeir eru einna helst málun þriggja lykilmannvirkja á Heppunni  (Gamlabúð, Graðaloftið og Mikligarður. )  Búa til tímabundið einstefnugötu frá steinasafninu að Pakkhúsinu og verður það gert með því að bæta trjágróðri í götuna o.fl.  Afmarka göngusvæði frá akandi umferð meðfram Miklagarði, gera klöpp sýnilega milli Graðalofts og Pakkhúss.  Einnig að útbúa sölubása þar sem smáframleiðendur matvæla og hannyrðafólk geti kynnt og selt vörur sýnar.  Básarnir eru síðan nothæfir ef söluaðilar vilja við önnur tækifæri svo sem við Humarhátíð, unglingalandsmót, fjórðungsmót Hestamanna með viðkomu skemmtiferðaskipa til Hafnar o.fl. ef aðilar óska eftir.
Næst kynnti Dagný Bjarnadóttir og Örn Smári hugmyndir hönnunarhópsins að ýmsum útfærslum á svæðinu.  M.a hvar hægt væri að koma fyrir sölubásum, gera útisvæði fyrir gangandi gesti, hönnun umbúða sem hægt væri að nýta sem söluvöru undir matvæli, merki (logo) fyrir Hafnarvík – Heppu o.fl. skemmtilegt.

Að lokum sköpuðust skemmtilegar umræður og fólk kom sýnum hugmyndum á framfæri með ýmislegt.  T.d kom hugmynd um að útbúa kræsingar úr humarklóm og fella inn í söluumbúðir sem hönnuðir voru búnir að gera drög að og rætt var um heiti og útlit logos o.fl.

Nú vinna hönnuðir áfram að hugmyndavinnu og er stefnt að því að halda annan kynningarfund í næstu viku eða föstudaginn 8. júní n.k kl 12:00 í Nýheimum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica