Útskrift frá FAS
Í dag fór fram fjölmennasta útskrift frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu til þessa. Alls voru útskrifaðir 22 stúdentar, einn vélstjóri af A stigi og einn af B stigi, sjö skipstjórar af A stigi, einn húsasmiður og einn leiðbeinandi í leikskóla.
Þar að auki fengu 11 nemendur sem hafa stundað nám í fjallamennsku viðurkenningu. Nýstúdentar eru: Alen Haseta, Alex Freyr Hilmarsson, Alexandra Geirsdóttir, Amna Hasecic, Ásgrímur Arason, Björn Ármann Jónsson, Egill Eiríksson, Ester Lind Önnudóttir, Hafdís Hauksdóttir, Heiða Jóhanna Pálmadóttir, Hólmar Hallur Unnsteinsson, Jóhannes Óðinsson, Kristín Hallsdóttir, Níels Brimar Jónsson, Oddur Gunnarsson, Óli Kristján Benediktsson, Rakel Ösp Elvarsdóttir, Sigfinnur Björnsson, Sigurður Ragnarsson, Sindri Örn Elvarsson, Sveinbjörg Zophoníasdóttir og Sverrir Brimar Birkisson. Dúx skólans að þessu sinni er Sigurður Ragnarsson. Meðaleinkunn Sigurðar er 9,66 og er þetta hæsta einkunn á stúdentsprófi í sögu skólans. Vélstjóri af A stigi er Vignir Júlíusson og vélstjóri af B stigi er Hannes Ingi Jónsson.
Af A stigi skipstjórnar útskrifast: Elís Hlynur Grétarsson, Grétar Smári Sigursteinsson, Guðlaugur Birgisson, Jón Kristinn Hafsteinsson, Sigurður Jón Ragnarsson, Torfi Hjaltason og Þröstur Jóhannsson. Oddný Jakobs Kristínardóttir útskrifast sem húsasmiður og Inga Jenný Reynisdóttir útskrifast sem leiðbeinandi í leikskóla.
Þá fengu nemar í fjallamennsku sérstaka viðurkenningu en það nám hefur verið kennt í tilraunaskyni undanfarnar annir. Þau sem fengu viðurkenningu eru: Aron Franklín Jónsson, Björn Ingi Jónsson, Friðrik Jónas Friðriksson, Haraldur Mímir Bjarnason, Hildur Þórsdóttir, Jón Bragason, Jónína Einarsdóttir, Ragnar Már Alfredsson, Rannveig Einarsdóttir, Þórhildur Magnúsdóttir og Þröstur Þór Ágústsson.
Starfsfólk FAS óskar útskriftarnemendum til hamingju með áfangann og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.
www.fas.is





Skrifa athugasemd