Prófsýning og útskrift
Nú er farið að styttast í skólalok. Í dag eru síðustu prófin og á fimmtudag, uppstigningadag er frí. Prófsýning verður milli 10 og 12 föstudaginn 18. maí. Nemendur er hvattir til að koma og skoða sín próf.
Á laugardag 19. maí verður svo útskrift. Þá verða útskrifaðir stúdentar, skipstjórar og vélstjórar. Einnig verða útskrifaðir nemendur í fjallamennskunámi. Athöfnin á laugardag hefst klukkan 14 og eru allir velkomnir og hvattir til að mæta á meðan húsrúm leyfir.





Skrifa athugasemd