Skrúfa bátsins virðist vera það eina sem er skemmt
Samkvæmt upplýsingum frá Sigurði Guðmundssyni skipstjóra á björgunarbátnum Ingibjörgu þá gekk mjög vel að ná Silfurnesinu SF af strandaði en báturinn á sandinum neðan við Steinavötn í Suðursveit.
Frá því að björgunarskipið fer af stað frá Höfn og búið er að draga bátinn á flot líða ekki nema 2 klst, þrátt fyrir að björgunarskipið hafi verið á stími að strandstað í eina klst og 20 mínútur. 2 menn voru settir í land af Ingibjörgu og tveir komu á björgunarsveitabíl að strandstað og gekk vel að koma bátnum út, sem gekk vel eins og sést á meðfylgjandi myndum. Ingibjörg dró síðan bátinn til Hafnar
Að sögn Grétars Vilbergssonar skipstjóra á Silfurnesinu SF þá virðist við fyrstu sýn skrúfa bátsins vera það eina sem hefur skemmst en það kemur betur í ljós þegar báturinn verður tekinn upp og skoðaður betur.
Grétar vildi koma á framfæri þakklæti til Björgunarsveitarmanna fyrir skjót og fumlaus vinnubrögð.




Skrifa athugasemd