Smábátur strandaði á sandrifi NNA af Hrollaugseyjum
Landhelgisgæslunni barst um kl. 07:30 í morgun aðstoðarbeiðni frá krókaveiðibát með einn mann um borð sem var strandaður á sandrifi NNA af Hrollaugseyjum.
Samstundis var haft samband við Ingibjörgu, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Höfn sem fór til aðstoðar og var báturinn laus af strandstað um kl. 10:00. Mun björgunarskipið fylgja bátnum til Hafnar.





Skrifa athugasemd