Fréttir
Steinunn SF 10
Steinunn SF 10

07.05.2012 Fréttir

Steinunn sló ársgamalt aflamet

Steinunn SF setti í apríl nýtt íslandsmet í afla með því að landa 723 tonnum úr tíu róðrum í mánuðinum. Þetta er mesti afli sem íslenskur triollbátur hefur fengið í einum mánuði og er aflavermæti hátt í 200 milljónir króna.

Gamla metið var sett fyrir um ári og það átti Steinunn SF líka. Frá þessu er greint á vef aflafrétta.

Steinunn SF er um 29 metra langur togbátur með 11 manns í áhöfn. Báturinn hefur verið að veiðum við sunnanvert landið og landað að mestu í Þorlákshöfn en þaðan er öllum aflanum ekið til Hornafjarðar.  Steinunn SF var mjög stutt úti hverju sinni en fiskaði vel og kom til dæmis með 81 tonn eftir einn dag á veiðum. Stærsti róður bátsins í apríl var 85 tonn sem fengust eftir tæpa tvo daga á veiðum.

www.ruv.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica