Fréttir
Pakkhús
Pakkhús
Verið að ræða málin
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

02.05.2012 Fréttir

Breytingar á Pakkhúsi

Pakkhúsið tekur nú miklum breytingum að innan en eins og margir vita seldi sveitarfélagið húsið í nóvember  síðastliðinn. Undurbúningur er hafin að breytingum en húsið verður leigt út til veitingareksturs.

Halldór Halldórsson og Bergþóra Ágústsdóttir munu hefja veitingarekstur í húsinu með sumrinu sem nú nálgast óðfluga. Til að koma fyrir viðurkenndu eldhúsi sem stenst allar kröfur þurfti að rífa gólfið norðanmegin í húsinu þar sem áður var móttökueldhús. Í stað þess kemur þar veitingaeldhús, barborð og tvö salerni á svipuðum stað og þau voru. Á hæðinni fyrir neðan verður gerð aðstaða sem nýst gæti undir búðarstarfsemi.

Halldór og Bergþóra segjast spennt fyrir að fara út í rekstur en viðurkenna að þau renni svolítið blint í sjóinn. "Þetta er spennandi verkefni í skemmtilegu húsi sem býður uppá ýmsa möguleika. Okkur hlakkar mikið til en vitum að mikil vinna bíður okkar, það er tvennt ólíkt að að vinna á veitingastað og að reka sinn eigin, það er í mörg horn að líta"

Pakkhúsið mun áfram bera sama nafnið og verður með heimasíðu slóðinni pakkhus.is en þau hafa fengið Daniel Imsland í lið með sér til að vinna heimasíðu og firmamerki.

"Fólk hér heima sem við höfum hitt virðist spennt fyrir verkefninu og það verður gaman að taka á móti fólki í Pakkhúsinu"

Aðspurður um matseðilinn segir Halldór að hann mun  byggja matseðilinn upp á hráefni frá svæðinu, hér sé nær allt að finna.
"Það hefur ekki gefist mikill tími til að huga að matseðlinum vegna framkvæmda og skipulagningu en ég mun halda áfram að nota svæðisbundið hráefni og það liggur beinast við að tengja það svolítið við skipin sem landa rétt hjá okkur. Eins mun ég nota skyr og fleira íslenskt hráefni í bland". „Við áætlum að opna veitingastaðinn áður en að hásumarið skellur á en svo eru vetrarmánuðirnir ennþá óráðnir. Við erum svolítið spennt fyrir þeim en þetta kemur allt í ljós hjá okkur“ segja Halldór og Bergþóra að lokum.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica