Fréttir
Að aflokinni Söngkeppni framhaldsskólanna 2012
Að aflokinni Söngkeppni framhaldsskólanna 2012
Mynd@fas

30.04.2012 Fréttir

Að aflokinni Söngkeppni framhaldsskólanna 2012

Frá undankeppni í FAS. Fulltrúaráð Nemendafélags FAS hélt fund í síðustu viku þar sem fjallað var um Söngkeppni framhaldsskólanna 2012 og fyrirkomulagið á keppninni í ár.

Undanfarin ár hefur keppnin verið haldin á Akureyri þar sem allir framhaldsskólar hafa átt fulltrúa. Keppnin hefur verið ein stærsta samkoma á meðal framhaldsskólanema.

Í ár umturnaði Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) fyrirkomulaginu. Keppnin var haldin í Reykjavík. Á undan keppninni hafði skólum gefist kostur á að taka upp sitt atriði í myndveri. Atriðin voru síðan birt á mbl.is þar sem almenningi gafst kostur á að kjósa um bestu framlögin. Einungis tólf atriði komust í lokakeppnina. Sex þessara atriða voru valin af dómnefnd og sex með símakosningu.

Mikil óánægja hefur verið með þetta fyrirkomulag á keppninni í ár og vill Fulltrúaráð Nemendafélags FAS að SÍF endurskoði fyrirkomulagið fyrir næstu keppni. Fyrr í dag sendi Fulltrúaráð Nemendafélags FAS bréf til SÍF til að lýsa yfir óánægju.
Bréfið til SÍF má sjá hér.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica