Fréttir
Kengúrur á vappi
Kengúrur á vappi
Mynd @fas

27.04.2012 Fréttir

Kengúrur á vappi

Það hlýtur að teljast harla óvenjulegt að sjá kengúrur á vappi hér á Höfn. Sú er þau raunin í dag. Hér eru á ferðinni væntanleg stúdentsefni í FAS sem eru að kveðja skólann sinn og dimittera í dag.

Krakkarnir voru árrisulir og í morgunsárið mátti sjá þá fara um götur bæjarins á vagni sem er tengdur aftan í traktor. Var m.a. komið við hjá kennurum og þeim boðið far í skólann sem einhverjir þáðu.
Alls eru um tuttugu stúdentsefni sem ætla að ljúka í vor. Eftir daginn í dag tekur alvara lífsins við og næstu dagar munu verða notaðir til að einbeita sér að prófalestri.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica