Fréttir
Rannsóknarverkefni kynnt
Rannsóknarverkefni kynnt
MYND FAS

26.04.2012 Fréttir

Rannsóknarverkefni kynnt

Í dag kynntu nemendur verkefni sín sem hafa verið unnin í mismunandi áföngum á önninni. Þetta eru áfangar í frumkvöðlafræði, tölvufræði og rannsóknaáfangar í félagsvísindum og náttúruvísindum.

Þessir áfangar eru einkum ætlaðir nemendum sem eru u.þ.b. að ljúka námi og krefjast sjálfstæðra og agaðra vinnubragða.
Egilll Eiríksson kynnti verkefni sitt sem er skráningakerfi fyrir heyrúllur. Amna Hasecic fjallaði um Hoffellsjökul og nábýlið við jökulinn. Ásgrímur Arason fjallaði um hvernig má spara orku á einfaldan hátt. Alen Haseta og Sindri Örn Elvarsson kynntu niðurstöður úr könnun sinni um félagslíf í FAS. Sigfinnur Björnsson fjallaði um Eldsmiðinn og sögu hans. Jóhannes Óðinsson og Óli Kristján Benediktsson lögðu fram viðskiptahugmynd þar sem framleiddur yrði bjór í héraði.
Kynningarnar voru fjölbreyttar og stóðu nemendur sig ljómandi vel.

www.fas.is


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica