Gengið á Hvannadalshnúk
Í gær á sumardaginn fyrsta, gengu fimm göngugarpar úr útivistarklúbb skólans á Hvannadalshnúk. Þetta voru þau: Agnar Ólafsson, Eggert Helgi, Jens Olsen, Sigurður Ragnarsson og Sólveig Valgerður.
Farin var svokölluð Sandfellsleið og leiðsögumaður var Einar Rúnar Sigurðsson á Hofsnesi, en hann hefur gengið oftast allra á Hvannadalshnúk. Farið var í Öræfin á miðvikudagskvöld. Gist var í smáhýsum í Lækjarhúsum á Hofi og þar var öll aðstaða til fyrirmyndar. Um kvöldið var grillað og síðan lögð lokahönd á undirbúning fyrir gönguna.
Stefnt var að því að hefja göngum um sjöleytið í gærmorgun, en vegna hvassviðris var því frestað um tvo tíma. Þá var farið að lægja og hægt að leggja af stað. Mest alla leiðina upp var mótvindur, með tilheyrandi kælingu, en mest fór frostið í um -15°C. Færið var að öðru leyti ágætt, en ganga þurfti á snjóþrúgum nokkurn hluta leiðarinnar. Þegar komið var upp í gíg Öræfajökuls tók að lægja og þegar uppganga á Hnúkinn sjálfan hófst var komið logn og blíða og veðrið hélst þannig það sem eftir var dags. Eftir gott stopp á Hnúknum var svo haldið til baka sömu leið.
Það var ánægður hópur sem kom niður á bílastæðið við Sandfell um klukkan níu í gærkvöldi. Þá var farið og pakkað saman draslinu í smáhýsunum og síðan brunað heim á leið og var hópurinn kominn á Höfn um ellefuleytið.
Eins og áður segir var ferðin mjög vel heppnuð og hópurinn vill koma á framfæri sérstökum þökkum til Eyþórs í Lækjarhúsum og Einars á Hofsnesi fyrir liðlegheit og góða þjónustu.
www.fas.is





Skrifa athugasemd