Fréttir
102 Hreinsivirki við Leiðarhofða
102 Hreinsivirki við Leiðarhofða

20.04.2012 Fréttir

Fráveituframkvæmdir í Sveitarfélaginu Hornafirði

Sveitarfélagið Hornafjörður bauð út í vetur tvær framkvæmdir er varða endurbætur á fráveitu í eigu sveitarfélagsins. Um er að ræða framkvæmdir við tjaldstæðið á Höfn og í Nesjahverfi. Eru framkvæmdirnar liður í framtíðaruppbyggingu fráveitukerfis sveitarfélagsins. Framkvæmdirnar miða að því að auka hreinsun á skólpi áður en fráveituvatni er veitt til viðtaka. Framkvæmdirnar tryggja þannig að sveitarfélagið standist reglur um hreinsun skólps. Þannig er tryggt að viðtakar standi það álag sem veitt er í þá og umhverfi þeirra er hlíft ásamt því að strandlengja og félagssvæði Hestamanna verður hreint.

 

Fráveita við tjaldsvæði.

Áður en endurbætur á fráveitu við tjaldsvæði hófust var allt fráveituvatn tjaldsvæðis leitt í gegnum rotþró sem staðsett var austan við tjaldsvæðið, einnig rann hluti af skólpinu óhindrað framhjá þróinni og beint út í viðtaka. Skólpinu var veitt út í fremur viðkvæmur viðtaki ( Sílavík ) sem tók við afrennslisvatni þróarinnar og fráveitulögn „ Gulu salerna tjaldsvæðisins „. Sílavík er hluti af Skarðsfirði sem er á náttúrumynjaskrá. Í Sílavík eru leirur sem er mikilvægt vistkerfi fyrir ýmsar fuglategundir og tilvalið til náttúruskoðunar.

Með framkvæmdunum er tryggt að öllu skólpi tjaldsvæðisins verður veitt um hreinsibúnað sveitarfélagsins við Leiðarhöfða og þar að leiðandi er Sílavíkinni hlíft við því skólpi sem kom áður frá tjaldsvæðinu. Þar sem tjaldsvæðið á Höfn er lægra í landinu en fráveitukerfi bæjarins þarf að dæla skólpinu yfir í fráveitulögn í Vesturbraut. Fráveituvatn tjaldsvæðisins mun nú renna í gegnum fallturn sem grófhreinsar skólpið áður en það fer í dælubrunn sem stendur við Hafnarveginn. Í verkinu er einnig aðstaða fyrir húsbýlalosun bætt til að tryggja betri þjónustu við ferðamenn.

Jón Pálsson er verktaki verksins og hlaut hann það eftir útboð. Heildar tilboð Jóns var samtals upp á 5.856.252.- kr m.vsk. Alls bárust sjö tilboð í verkið.

Verklok eru áætluð á allra næstu dögum og verður tjaldsvæðið því tilbúið að taka á móti gestum sínum fyrir sumarið 2012 þegar það opnar. Núverandi rekstraraðili reiknar með að opna tjaldsvæðið fyrr en ella þar sem fjöldi ferðamenn eru farnir að láta sjá sig í Sveitarfélaginu Hornafirði.

 

Fráveita í Nesjahverfi.

Verktakinn Ólafur Halldórsson er byrjaður á endurbótum á fráveitu fyrir Nesjahverfi og er áætlað að framkvæmdum ljúki í byrjun júní. Framkvæmdin snýr að endurnýjun á fráveitulögn frá hverfinu að núverandi rotþró. Þetta er liður í því að tryggja fullnaðar hreinsun á fráveituvatni notenda, en fráveitukerfið þjónar Hótel Jökli, hverfinu, Mánagarði og bensínstöð. Eftir þessa framkvæmd fer fram mælingar á rennsli í þrónna sem ákvarðar næsta áfanga á uppbyggingu hreinsikerfisins. Þetta er mikilvægt því hin aflagða lögn var orðin verulega lek og flutti því umframjarðvatn að þrónni sem varð þess valdandi að hún gat ekki sinnt hreinsun á skólpi eins og til var ætlast. Afrennsli þróarinnar rennur út í skurð meðfram vegi að hestamannavelli og er því um að ræða viðkvæman viðtaka sem kallar á svokallaða þriggja þrepa hreinsun. Hreinsikerfi eru byggð upp á þann veg að það þarf að geta hreinsað ákveðið m³ af skólpvatni og því mikilvægt að einangra skólp frá jarðvatni. Eftir að fráveitan verður fullbyggð samanstendur hún af núverandi rotþró, loftunarkössum sem auka niðurbrot skólpsins og svokölluðum UV búnaði ( Útfjólublár geisli ) sem full hreinsar afrennslisvatn sem veitt er í núverandi viðtaka ( skurður ). Fyrirmynd af þessu hreinsikerfi er frá Egilsstöðum þar sem Eyvindaráin er viðtaki og hefur hreinsikerfið reynst vel uppi á héraði. Áætlað er að endanlegri uppbyggingu fráveitunnar ljúki á næstu árum, en hönnun og undirbúningsvinna ræðst af mælingu á innrennsli í þrónna eftir að núverandi framkvæmdum líkur. Til að tryggja að hægt sé að mæla hámarksnotkun á kerfinu verða mælingarnar að fara fram yfir sumarið þegar hótelið er í fullum rekstri. Einnig er mikilvægt að fá fjölbreytta veðráttu til að fylgjast með því hvort jarðvatn er að skila sér í lögnina eða ekki.

Framkvæmdin felur einnig í sér að undirbúa endanlegan frágang á plani með bundnu slitlagi við Mánagarð. Um er að ræða hefðbundin frágang á niðurfallakerfi fyrir planið. Því vatni sem safnast saman á planinu verður veitt frá rotþrónni til að tryggja rétta stærð á framtíðar hreinsivirki sem rætt vísað er hér að ofan.

Ólafur Halldórsson var með lægst tilboð í verkið þegar það var boðið út. Samtals 10.241.781.- kr m.vsk en alls buðu sjö aðilar í verkið. Haukur Ingi Einarsson Framkvæmdastjóri

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica