Fréttir
Hornafjarðarhöfn
Hornafjarðarhöfn
Hornafjarðarhöfn (Mynd JST)

18.04.2012 Fréttir

Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu

Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkti umsögn um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða og frumvarp til laga um veiðigjöld.  Þar eru gerðar verulegar athugasemdir við frumvörpin og einstakar greinar þeirra. 

Að mati bæjarráðs þarf að taka frumvarp til laga um stjórn fiskveiða til gagngerrar skoðunar og lækka veiðigjöld verulega eins og þau eru kynnt í frumvarpi til laga um veiðigjöld. Óbreytt lamar það fjárfestingu í sjávarútvegi, kæfir nýsköpun og framþróun greinarinnar og þar með þær byggðir sem byggja afkomu sína að verulegu leyti á sjávarútvegi.

Bæjarráð Hornafjarðar hefur ítrekað lagt áherslu á að leita beri sátta meðal þjóðarinnar og hagsmunaaðila um fiskveiðistjórnun, að breytingar á kerfinu skaði ekki sjávarbyggðir og byggja eigi nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi á niðurstöðu sáttanefndar.   Því tekur bæjarráð Hornafjarðar undir meginmarkmið frumvarpanna um að skerpa á þeim skilningi að þjóðin sé eigandi auðlindarinnar, að nýtingarrétturinn sé tímabundinn með þeim fyrirvara að endurnýjun nýtingarsamninga sé skýr og að þjóðin njóti afraksturs af nýtingu auðlindarinnar í meira mæli en nú er þó bæjarráð Hornafjarðar telji nauðsynlegt að til komi veruleg lækkun á fyrirhuguðum veiðigjöldum eins og þau eru lögð upp í frumvarpinu.  

Bæjarráð fékk KPMG ehf. til að meta áhrif frumvarpanna á Hornafjörð.   Helstu niðurstöður eru að:

  • Veiðigjöld munu nema samtals rúmum 1.300 m.kr. sem er sjöföldun á núverandi veiðigjaldi.
  • Aflaheimildir munu dragast saman um 640 þorskígildistonn sem leiða til samdráttar í útsvarstekjum upp á 17 m.kr. frá því fiskveiðikerfi sem gilti fyrir gildistöku laga nr. 70/2011.
  • Það mun kosta útgerðir um 200 m.kr. að leigja til sín heimildir af kvótaþingi til að verða jafnsettar og áður fyrir gildistöku laga nr. 70/2011.

Að óbreyttu verða veiðigjöld á Höfn í Hornafirði alls 1,3 miljarður króna eða 779 þúsund krónur á hvern íbúa.  Umreiknað á stærstu byggðarlög landsins yrðu gjöldin þar með eftirfarandi hætti:

 

Fjöldi
íbúa

Veiðigjöld á
hvern íbúa
á Höfn

Alls veiðigjöld í viðkomandi sveitarfélagi
miðað við veiðigjöld á Höfn
Reykjavík 118.814 779.376 92.600.839.329
Kópavogur 31.205 779.376 24.320.443.645
Hafnarfjörður 26.486 779.376 20.642.565.947
Akureyri 17.875 779.376 13.931.354.916
Reykjanesbær 14.137 779.376 11.018.045.564
Garðabær 11.283 779.376 8.793.705.036

Í ljósi niðurstaðna af vinnu KPMG og  annarra gagna sem sveitarstjórnarmenn hafa kynnt sér hefur bæjarráð Hornafjarðar verulega þungar áhyggjur af þeim breytingum sem kynntar hafa verið á fiskveiðistjórnunarkerfinu.  Ef málin verða afgreidd frá Alþingi samkvæmt fyrirliggjandi drögum, munu þau hafa veruleg neikvæð áhrif á grunnatvinnugrein sveitarfélagsins með tilheyrandi fækkun starfa, samdráttar í hinu staðbundna hagkerfi á Hornafirði og eykur því óvissu um framtíðarþróun samfélagsins.

Meðfylgjandi er skýrsla KPMG (pdf)
Meðfylgjandi er umsögn bæjarráðs Hornafjarðar. (pdf)


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica