Fréttir
Norðurljósakerti
Norðurljósakerti

18.04.2012 Fréttir

Norðurljósa- og Jöklakertin eru hönnuð af Gingó

Fyrir skemmstu kom á markað ný vara  sem er sprottin úr ríki Vatnajökuls. Varan eru kerti sem skírskota mjög til náttúru okkar.

Norðurljósakertin og Jöklakertin eru hönnuð og framleidd af fjöllistakonunni Gingó (Guðrúnu Ingólfsdóttur) og eru algerlega handunnin og er ekkert kerti eins. Umbúðirnar voru hannaðar hjá MM hönnun og myndirnar á þeim tók Runólfur Hauksson áhugaljósmyndari en núna stendur yfir í Listasafninu á Höfn ljósmyndasýning hans.  Gingó flutti nýlega í nýja vinnustofu í Kartöfluhúsinu (kyndiklefann)  en Skinney Þinganes á húsið og að sögn Gingó hafa þeir verið ákaflega jákvæðir og afhentu henni fullkomna leirvinnustofu til afnota.

Hægt er að nálgast kertin til kaups á vinnustofunni en þau eru einnig til sölu hjá ýmsum ferðaþjónustuaðilum hér á svæðinu.  

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica