Þórey Sigfúsdóttir einkaþjálfari hefur störf hjá Sporthöllinni
Þórey Sigfúsdóttir ÍAK einkaþjálfari í Sporthöllinni
Þórey Guðný Sigfúsdóttir hóf til störf hjá Sporthöllinni þann 12. apríl en hún útskrifast sem ÍAK einkaþjálfari frá Keili núna í júní. Námið er tveggja anna nám þar sem meðal annars er lögð áhersla á heilbrigði einstaklingsins, meiðslaforvarnir og uppbyggingu eftir meiðs. Mikil áhersla er lögð á verklega kennslu í náminu, samhliða þeirri bóklegu, þar sem starf einkaþjálfarans er fyrst og fremst verklegt.
Þórey býður upp á einstaklingsmiðaða þjálfun þar sem haldið er utan um ástands, fitu og ummálsmælingar, líkamsstöðugreiningu, vigtun og næringarráðgjöf. Þjálfun með einkaþjálfara fer fram þrisvar sinnum í viku og þess á milli er frjáls mæting í Sporthöllina og er hvert tímabil fjórar vikur.
Nánari upplýsingar veitir Þórey í síma 6152281 en einnig er að hægt að senda póst á netfangið thorey@gmail.com





Skrifa athugasemd