Ráðning fræðslustjóra Hornafjarðar
Í marsmánuði var auglýst eftir umsóknum í starf fræðslustjóra hjá Sveitarfélaginu Hornafirði. Eftir hefðbundið ráðningarferli var niðurstaða bæjarstjóra að gera tillögu um að Ragnhildur Jónsdóttir yrði ráðin í starfið.
Rökin fyrir tillögunni voru að hún hefur víðtæka reynslu úr skólakerfinu, í leik- og grunnskóla, sem verkefnisstjóri framhaldsfræðslu og starfsmaður skólaskrifstofu. Verkefnin sem hún hefur sinnt eru fjölbreytt og spanna víðtækt svið, t.d. handleiðslu fyrir stjórnendur og fagmenn í menntakerfinu, þróunarverkefni í skólastarfi, starf sem þroskaþjálfi í leik- og grunnskóla, sérkennsla í grunn- og leikskóla, náms- og starfsráðgjöf, sérkennsluráðgjöf í grunnskóla og jafnframt unnið að þróunarverkefnum í skólamálum. Þá hefur Ragnhildur fjölbreytta menntun sem nýtist í starfi: meistarapróf í uppeldis- og menntunarfræði, diplómapróf í náms- og starfsráðgjöf, BA próf í sérkennslufræðum og þroskaþjálfapróf. Þá kemur fram í máli umsagnaraðila að hún eigi auðvelt með samstarf, eigi auðvelt með að leiða verkefni og hrinda þeim í framkvæmd, sé áhugasöm um það sem hún tekur sér fyrir hendur og sinni verkefnum af alúð.
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkti tillögu bæjarstjóra á fundi sínum þann 12. apríl sl.
Ragnhildi er óskað velfarnaðar í störfum sínum.





Skrifa athugasemd