Fréttir
Hreindýr (úr myndasafni)
Hreindýr í Stafafellsfjöllum
Hreindýr (úr myndasafni)

14.04.2012 Fréttir

Hreindýr, girðingar og beitarþol

Á ný eru fréttir sagðar af meintu bágu ástandi girðinga á Mýrum í Hornafirði og afleiðingum þess fyrir velferð hreindýra.  Síðast liðið haust gaf bæjarráð Hornafjarðar út almenna áskorun til jarðareiganda í Hornafirði um að gæta að girðingum þannig að velferð hreindýra stafaði ekki ógn af. 

Þá tilkynningu er hægt að sjá á RíkiVatnajökuls.is (http://www.rikivatnajokuls.is/frettir/nr/8911).   Girðingar eru almennt í góðu lagi og þar á  meðal á Flatey á Mýrum.   Sveitarfélaginu barst nýverið áskorun frá bændum á Mýrum að framkvæma rannsókn á beitarþoli svæða þar sem hreindýr halda sig.  Niðurstöður slíkrar rannsóknar geta í framhaldinu myndað grunn að veiðistjórnun á svæðinu.  Bændur hafa komið að máli við bæjarstjóra á undanförnum vikum og mánuðum og lýst yfir áhyggjum af vaxandi ágangi hreindýra á afgirt lönd sín og auknum fjölda þeirra.  Þá hafa fundist nokkur dýr sem fallið hafa úr hor sem rennir stoðum undir að beitarþolsrannsókn sé mikilvæg.

 

Um efnisatriði ákæru sem sveitarfélaginu barst frá fréttamanni Stöðvar 2 er ekkert hægt að segja á þessu stigi annað en hún fer nú til skoðunar hjá lögfræðingi sveitarfélagsins og í framhaldi fundinn réttur farvegur.  Á það skal hins vegar bent að fréttir eru sagðar af málinu áður en sveitarfélaginu barst ákæran eftir réttum leiðum.  Þá vakna upp spurningar hvort reka eigi málið í gegnum fjölmiðla eða dómstóla.  Samhliða því að finna efni kærunni eðlilegan farveg mun sveitarfélagið beita sér að fullu krafti að ofangreindi beitarþolsrannsókn þannig að bændur í Hornafirði verði ekki hlunnfarnir meira en orðið er af völdum hreindýra.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica