Sterk fjárhagsleg staða Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Bæjarráð Hornafjarðar tók ársreikning fyrir árið 2011 til fyrri umræðu á fundi sínum þann 26. apríl.
Rekstrarhagnaður samstæðu Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2011 skv. rekstrarreikningi nam 137 m.kr. og handbært fé frá rekstri skv. sjóðsstreymisyfirlit nam 277 m.kr. Framlegð rekstrar er góð eða upp á 17% þegar viðmið eftirlitsnefndar sveitarfélaga er 15%. Þróun skulda heldur áfram að vera jákvæð og í hlutfalli við heildartekjur skuldar sveitarfélagið nú um 74% en eins og kunnugt er viðmið nýrra sveitarstjórnarlaga 150%.
Aðrar lykiltölur sem hér fara á eftir bera sterkri fjárhagslegri stöðu sveitarfélagsins glöggt vitni:
Sveitasjóður (A-hluti) Samstæða sveitarfélagsins (A og B hluti)
Rekstrarniðurstaða 98 m.kr. 137 m.kr.
Framlegð 12,1% 17,2%
Handbært fé frá rekstri 167 m.kr. 277 m.kr.
Handbært fé í árslok 208 m.kr. 208 m.kr.
Skuldir í hlutfalli við tekjur 64% 74%
Eigin fjárhlutfall 68% 64%
Veltufjárhlutfall 1,86 1,35
Bæjarstjórn tók fyrir ársreikning til fyrri umræðu þann 12.apríl.
Ársreikningur 2011 (pdf)
Nánari upplýsingar gefur Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri í síma 822 7950 og á netfang hjaltivi@hornafjordur.is




Skrifa athugasemd