Námskeið í ræktun matjurta á Höfn
Garðyrkjufélag Hornafjarðar verður með námskeið í ræktun matjurta fimmtudaginn 12. apríl frá kl. 18-22.
Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Jóhanna B. Magnúsdóttir garðyrkjufræðingur og verður námskeiðið haldið í húsi Afls við Víkurbraut. Í fyrirlestri verður farið inná lífræna ræktun, safnhauga, varnir gegn skaðvöldum, skipulag matjurtagarðs og legu hans, forsáningu og fleira. Í verklegum hluta námskeiðsins verður kennt að sá og dreifisetja (prikla).
Verð: kr. 3.500 fyrir félagsmenn Garðyrkjufélags Íslands en 4.500 fyrir aðra. Skráning í síma 895-0454 (Lovísa) og 899-1856 (Óðinn) eða á netföngin haholl@simnet.is og odinn@hotelhofn.is





Skrifa athugasemd