FAS í söngkeppni framhaldsskólanna
Undankeppni söngkeppni framhaldsskólanna hófst á skírdag. Skólarnir sem taka þátt í keppninni hafa tekið upp myndband, sem birt er á vefnum.
Þar má sjá og heyra fulltrúa 32 framhaldsskóla flytja sitt lag og þannig getum við valið, og síðan kosið með símakosningu þann skóla sem okkur finnst hafa staðið sig best.
Hægt verður að kjósa til 18. apríl, en þá verður tilkynnt hvaða tólf skólar komast í lokakeppnina, sem fer fram í Vodafonehöllinni 21. apríl og verður sjónvarpað beint á RÚV kl. 20:30.
Fulltrúar FAS að þessu sinni eru þau Kolbrún Birna Ólafsdóttir og Þorgeir Dan Þórarinsson, sem syngja hinn sívinsæla smell HLH flokksins „Vertu ekki að plata mig”. Til að kjósa þau þarftu bara að hringja í síma 900 2028. Því fyrr og oftar því betra. Atkvæði þjóðarinnar gilda helming á móti atkvæðum dómnefndar.
Á mbl.is var flutt frétt af keppninni og þar má sjá myndbönd allra skólanna, þeirra á meðal FAS, ef fylgt er slóðinni: http://mbl.is/folk/songkeppni/view/1046/
Þá er bara að drífa sig og kjósa!
www.fas.is





Skrifa athugasemd