Fréttir
Tombólur til styrktar Rauða krossinum
Héldu tombólur til styrktar Rauða krossinum
Stúlkurnar heita Dagmar Lilja Óskarsdóttir, Petra Rós Jóhannsdóttir, Nína Dögg Jóhannsdóttir og Karen Ása Benediktsdóttir.

05.04.2012 Fréttir

Héldu tombólur til styrktar Rauða krossinum

Stuðningur tombólubarna á hverju ári er Rauða krossinum ákaflega mikils virði og er félagið þakklátt fyrir eljuna og dugnaðinn sem liggur að baki hverri tombólu.

Stúlkurnar á meðfylgjandi mynd héldu tvær tombólur til styrktar Rauðakrossinum og söfnuðu þær alls 5.430,- krónum. Stúlkurnar heita Dagmar Lilja Óskarsdóttir, Petra Rós Jóhannsdóttir, Nína Dögg Jóhannsdóttir og Karen Ása Benediktsdóttir.

 Að sögn Valgerðar Hönnu hjá Rauðakrossdeild Hornafjarðar, þá skiptir hver króna máli og vildi hún koma á framfæri þakklæti til þessara duglegu stúlkna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica