Fréttir
Ungir framsóknarmenn
Ungir framsóknarmenn

03.04.2012 Fréttir

Ungir framsóknarmenn funda

Félag ungra framsóknarmanna í Austur Skaftafellssýslu boðar til aðalfundar n.k. miðvikudag 4.apríl kl 21:00 á Kaffi Horninu.


Á dagskrá verða venjulega aðalfundarstörf og að loknum fundi verður pubquiz í boði FUF með veglegum páskavinning!
 
Félag ungra framsóknarmanna í Austur Skaftafellssýslu var endurvakið 10. apríl árið 2009 eftir að félagið hafði legið nokkur ár í dvala. Stofnfélagar voru þá fleiri en hjá nokkru öðru FUF-félagi eða um 70 talsins. Félag ungra er fyrir meðlimi framsóknarflokksins á aldrinum 16 – 35 ára en ungir framsóknarmenn berjast oft á tíðum fyrir öðrum málefnum en þeir eldri og þar má meðal annars nefna auknum atvinnumöguleikum fyrir ungt fólk á sumrin, sumarönnum í háskólum, niðurfellingu skólagjalda við opinbera háskóla, fleiri stúdentaíbúðum, ódýrari getnaðarvörnum ofl.
 
Frá 2010 hefur FUF átt 2-3 menn í stjórn Sambands ungra framsóknarmanna, SUF, sem er landssamband ungs framsóknarfólks. Sambandsþing var haldið nú nýverið og sitja nú 2 Hornfirðingar í stjórn SUF og 1 í varastjórn, auk þess sem að Hornfirðingur er formaður Alþjóðanefndar SUF.
 
FUF hvetur alla sem hafa áhuga á að kynna sér málið til að kíkja á Kaffi Hornið á miðvikudagskvöld.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica