Fréttir
Hjúkrunardeild
Hjúkrunardeild (úr myndasafni)

03.04.2012 Fréttir

Sumarstörf í boði hjá HSSA

Heimaþjónustudeild Hornafjarðar óskar nú eftir starfsfólki í sumarafleysingar í félagslegri heimaþjónustu/ heimilishjálp og dagvist aldraðara í Ekru.

Einnig óskast sjúkraliði í afleysingu í heimahjúkrun. Upplýsingar um störfin gefur Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri á heilsugæslusviði í síma 470 8600 eða netfang ester@hssa.is

HSSA óskar eftir starfsmanni við sumarafleysingar í ræstingum á hjúkrunardeil frá 16. júlí n.k. Vinnutími frá 8-14 og 3ja hver helgi. Upplýsingar gefur Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði í síma 470 8630 eða netfang asgerdur@hssa.is

Starfsmaður óskast til aðstoðar umsjónarmanni HSSA. Í starfinu felst m.a. garðvinna og viðhald undir leiðsögn umsjónarmanns. Æskilegt er að umsækjendur hafi bílpróf. Upplýsingar gefur Andrés Júlíusson umsjónarmaður fasteigna HSSA í síma 861 8452 og netfang andres@hssa.is.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica