Fjallað um ICEPO verkefnið í Varsjá
Í gær var haldin í Varsjá ráðstefna á vegum Fundusz Stypendialny i Szkoleniowy en þessi sjóður hefur hlotið styrki frá EFTA til samstarfsverkefna.
Þau lönd sem geta sótt í þennan sjóð eru Ísland, Lichtenstein og Noregur og er skilyrði að vinna með skóla í Póllandi. FAS var í samstarfi við skóla í Debica skólaárið 2009 - 2010 og vann þá að verkefninu ICEPO sem fjallaði m.a. um mismunandi menningu.
Á ráðstefnunni í gær var nokkurs konar lokahátíð þeirra verkefna sem fóru af stað á sama tíma og ICEPO en nokkrir tugir verkefna fóru af stað. Fyrir ráðstefnuna voru valin fimm verkefni sem fjallað var um sérstaklega og sem dæmi um verkefni sem höfðu lukkast vel. Það var Hlíf Gylfadóttir sem sótti ráðstefnuna fyrir hönd FAS.
Það er ánægjulegt að verkefni okkar fái slíka umfjöllun en áður hafði það hlotið eTwinning verðlaun fyrir árið 2010 í flokki framhaldsskóla hér á Íslandi.





Skrifa athugasemd