Fréttir
Meistaramót FAS
Meistaramót FAS
Mynd @FAS

29.03.2012 Fréttir

Meistaramót FAS

Meistaramót FAS á vorönn 2012 var haldið í Nýheimum síðast liðinn fimmtudag, nánar tiltekið þann 22. mars. Kynnar voru Róslín Alma Veldemarsdóttir og Símon Rafn Björnsson og stóðu þau sig með prýði.

Litháarnir sem voru í heimsókn hjá íslenska samstarfsskólanum tóku þátt í þrautunum og virtust hafa mjög gaman af. Gestirnir sýndu jafnvel meiri áhuga á að taka þátt en íslensku krakkarnir.

Það var keppt í 20 greinum sem flestar teljast frekar óhefðbundnar, s.s. keppni í kókosbolluáti, slökkt á kertum með sápukúlum og að mata gest með skyri með bundið fyrir augun. Það þótti tíðindum sæta að Finnur bætti vafasamt met sem að Egill hafði sett fyrir áramót. Þá missti María Selma röddina við það að gleypa kanil.
Myndbönd frá mótinu munu koma von bráðar inn á síðu nemendafélagsins og þar ætti að vera hægt að sjá flestar, ef ekki allar þrautirnar sem keppt var í.
Það er ljóst að meistaramót FAS er komið til að vera. Bæði keppendum og gestum finnst mótið hin ágætasta tilbreyting og skemmtun.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica