Fréttir
Uss-usss-cover
Uss-usss-cover

28.03.2012 Fréttir

Geisladiskurinn Uss uss

Undanfarin 4 ár hefur Jóhann Morávek í samvinnu við Rafn  Sigurbjörnsson unnið að  geisladiski með frumsömdu efni fyrir leikskólaaldurinn.

Diskurinn sem heitir „Uss, uss“ inniheldur 12 lög ásamt Þjóðsöng Íslands sem spilaður er  í tóntegund sem hentar þessum aldri.  Öll lögin eru eftir Jóhann og Rafn sem samdi jafnframt alla texta.  Börn á aldrinum 5 – 11 ára syngja lögin og koma nánast öll börnin héðan frá Höfn. Diskurinn er hugsaður líka sem hljóðfærakynning og koma býsna mörg hljóðfæri fyrir á honum og þar leika Hornfirskir hljóðfæraleikarar stórt hlutverk. Jóhann útsetti öll lögin og tók upp diskinn, en Rafn hannaði albúmið og 64 síðna bók sem fylgir, með textum og hljómum auk myndum af þeim hljóðfærum sem koma fyrir í lögunum ásamt flytjendum þeirra.
Krakkar úr Lúðrasveit Tónskólans hafa verið að ganga í hús og selt diskinn sem kostar kr. 2000- og mun sölulaun þeirra renna í ferðasjóð lúðrasveitarinnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica