Fréttir
Kvenfélagið Tíbrá
Kvenfélagið Tíbrá
gamla stjórnin
Mynd 2 af 2
1 2

27.03.2012 Fréttir

Kvenfélagið Tíbrá endurvakið

Aðalfundur Kvenfélagsins Tíbrá var haldinn þann 8. mars síðastliðinn. Á fundinum var ákveðið að endurvekja kvenfélagið.

Kosin var ný stjórn en hana skipa: Þórey Harpa Þorbergsdóttir formaður, Björk Pálsdóttir gjaldkeri, Maríanna Jónsdóttir ritari, Sonja Garðarsdóttir og Hera Guðmundsdóttir meðstjórnendur.
Markmið kvenfélagsins er að efla samvinnu og félagsskap kvenna í samfélaginu.
Í tilefni þessa ætlar Kvenfélagið Tíbrá að halda vorfund/fagnað í maí þar sem kvenfélagskonur og allar áhugasamar konur er hvattar til að mæta og taka þátt í uppbyggingu kvenfélagsins. Á fundinum verður ákveðið hvernig við ætlum að starfa og hvað við viljum gera í framtíðinni.

Fundurinn verður nánar auglýstur síðar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica