Fréttir
Björgunarskipið Ingibjörg
Björgunarskipið Ingibjörg

22.03.2012 Fréttir

Fórnfúst starf björgunarsveita ómetanlegt

Samstarf Olís og Björgunarbátasjóðs Hornafjarðar

,,Fjárhagslegur stuðningur Olís við Björgunarbátasjóð Hornafjarðar er mjög mikilvægur fyrir okkur og þar með rekstur björgunarskipsins Ingibjargar SF. Þær fjárhæðir sem berast árlega frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og ríkissjóði nægja einfaldlega ekki til að reka sjóðinn, þannig að Olís leggst sannarlega á árarnar með okkur til að láta enda ná saman ásamt velviljuðum fyrirtækjum hér heima og sveitarfélaginu,"  segir Sigurður Guðmundsson stjórnarmaður Björgunarbátasjóðs Hornafjaðrar. Hann segir að  frumkvæðið hafi á sínum tíma komið frá Hauki Sveinbjörnssyni umboðsmanni Olís á Hornafirði. Eftir að málið hafi verið lagt á borð annarra stjórnenda fyrirtækisins hafi verið gengið frá samningi. Styrkur Olís hafi nægt til að greiða þriðjung til helming eldsneytiskostnaðar Ingibjargar.

Okkar er heiðurinn
,,Þorri landsmanna dáist að því fólki sem sinnir hjálparstarfi í frístundum sínum og hefur bjargað ótal mannslífum, oft við erfiðar og hættulega aðstæður.  Þetta fórnfúsa starf er ómetanlegt og við hjá Olís réttum fram hjálparhönd með stolti. Samstarf fyrirtækisins og Björgunarbátasjóðs Hornafjarðar hefur verið einstaklega ánægjulegt í mörg ár og ég bind vonir við að svo verði áfram. Okkar er því heiðurinn," segir Jón Ólafur Halldórsson framkvæmdastjóri sölusviðs Olís.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica