Stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundastarfi – opinn vinnufundur
Hafin er endurskoðun á stefnu sveitarfélagsins í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum. Í tengslum við endurskoðunina verður haldinn opinn vinnufundur í Nýheimum nk. laugardag, 24. mars frá kl. 10 – 14. Boðið verður upp á léttan hádegisverð fyrir þátttakendur.
Það er skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd sveitarfélagsins sem heldur utan stefnumótunarvinnuna. Starfsmenn hennar í þessu verkefni eru þeir Gunnar Ingi Valgeirsson, forstöðumaður íþróttamannavirkja, Árni Rúnar Þorvaldsson, tómstundafulltrúi og Stefán Ólafsson, framkvæmdastjóri fræðslu – og félagssviðs.
Frá upphafi hefur skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd lagt ríka áherslu á aðkomu almennings og hagsmunaaðila að stefnumótunarvinnunni. Þessi opni vinnufundur er liður í því að hleypa sem flestum að vinnunni þannig að verðandi stefna sveitarfélagsins endurspegli sem best þarfir samfélagsins í þessum málaflokkum. Í þessu samhengi er rétt að hafa í huga að stefnt er að því að stefna sveitarfélagsins nái utan um alla tómstundaiðkun hvort sem um er að ræða íþróttir eða kórastarf svo dæmi séu tekin. Stefnunni er einnig ætlað að ná utan um tómstundastarf fólks á öllum aldri. Við mótun stefnunnar skal sérstaklega hugað að eflingu hvers kyns jaðaríþrótta og almenningsíþrótta.
Sveitarfélagið hvetur alla sem áhuga hafa á málaflokknum til þess að mæta á fundinn og taka þátt í þessari mikilvægu vinnu. Góð þátttaka almennings og áhugafólks skapar forsendur fyrir markvissri og árangursríkri stefnu sveitarfélagsins til framtíðar í þessum mikilvægu málaflokkum.
Eins og áður segir þá er fundurinn öllum opinn og ekki er nauðsynlegt að skrá þátttöku á fundinum fyrir fram. Áhugasamir geta þó auðvitað sett sig í samband við einhvern fyrrnefndra starfsmanna.





Skrifa athugasemd