Fréttir
cruser_a_landsaefingu
Björgunarfélag Hornafjarðar

18.03.2012 Fréttir

Sóttu tvo erlenda ferðamenn upp á Vatnajökul

Á tólftatímanum í gærkvöldi barst tilkynning  um að neyðarsendir væri í gangi á austanverðum Vatnajökli.

Ýtrekuð boð höfu borist frá sendinum en ekki var vitað að svo stöddu  um sendanda boðanna. Björgunarfélag Hornafjarðar fór af stað á  tveimur bílum með fjóra sleða, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. 

Tveir erlendir ferðamenn höfðu lent í vonskuveðri, tjald þeirra rifnað og þeir orðnir kaldir. Þeir höfðu með sér neyðarsendi sem auðveldaði  leitina. Félagar frá Björgunarfélagi Hornafjarðar og þyrla Landshelgisgæslunnar komu að mönnunum á svipuðum tíma og ferjuðu þá og búnað þeirra til byggða.

Björgunarsveitamennirnir náðu síðan í dag í búnað mannanna sem skilinn var eftir í gærkvöldi upp á jökli.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica