Fréttir
Fláajökull að vetri til
Fláajökull að vetri til
Fláajökull in the winter (Myndasafn Brunnholl.is)

18.03.2012 Fréttir

Verkefið Veturinn í Ríki Vatnajökuls hlýtur 3 milljónir í styrk

Á föstudag veitti Iðnaðarráðherra, Oddný G. Harðardóttir verkefninu Ríki Vatnajökuls - Veturinn í Ríki Vatnajökuls 3 milljóna króna í styrk úr Þróunarsjóði Landsbankans og iðnaðarráðuneytisins

Verkefnið felur í sér að þróa samstarf ferðaþjónustufyrirtækja á Suðausturlandi um þróun og markaðssetningu á þrenns konar ferðum: 1) Jöklar í Ríki Vatnajökuls, 2) Matarferðir í Ríki Vatnajökuls, 3) Ljósmyndun í Ríki Vatnajökuls.

Samtals voru 20 styrkir að upphæð 38,9 milljónir króna úr Þróunarsjóði Landsbankans og iðnaðarráðuneytisins. Afhending styrkja úr Þróunarsjóðnum fór fram í Listasafni Íslands. Um er að ræða fyrri úthlutunina úr sjóðnum en alls bárust 113 umsóknir um styrki.
 
Þróunarsjóðurinn var stofnaður í tengslum við verkefnið Ísland allt árið.  Markmið sjóðsins er að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi, með því að styrkja þróun afurða og upplifana utan háannatíma ferðaþjónustu og auka þannig arðsemi fyrirtækja í geiranum. Samtals lögðu stofnendur 70 milljónir í þróunarsjóðinn, 40 milljónir frá Landsbanka og 30 frá iðnaðarráðuneyti sem úthlutað skildi í tveimur úthlutunum.

Úthlutunarnefnd var skipuð  Finni Sveinssyni, Davíð Björnssyni og Guðný Erlu Guðnadóttur frá Landsbankanum, Ásborgu Arnþórsdóttur sem skipuð var af iðnaðarráðherra, Berglindi Hallgrímsdóttur frá Nýsköpunarmiðstöð, Ólöfu Ýrr Atladóttur frá Ferðamálastofu og Einari Karli Haraldssyni frá verkefninu „Ísland  allt árið“. Formaður dómnefndar var Finnur Sveinsson, sérfræðingur í samfélagsábyrgð hjá Landsbankanum.

Sjá nánar frétt á vef Iðnaðarráðuneytisins (hér)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica