FAS í forritunarkeppni framhaldsskólanna
Laugardaginn 10. mars fór fram í Háskólanum í Reykjavík keppni í forritun. Það eru Tölvunarfræðideild HR og Nýherji sem standa að keppninni. Að þessu sinni tóku 44 lið þátt í keppninni og er það mesti fjöldi hingað til.Liðunum 44 var skipt í þrjá styrkleikaflokka. Eitt lið frá FAS tók þátt að þessu sinni. Það voru þeir Egill Eiríksson og Reynir Ásgeirsson í liðinu Apache og kepptu þeir í öðrum styrkleikaflokki. Fyrir hádegi áttu liðin að leysa mörg smærri verkefni og eftir hádegi voru fá en stór verkefni. Keppnin gekk út á að leysa sem flest verkefni. Strákunum í FAS gekk ljómandi vel. Eftir fyrri hluta keppninnar voru þeir í sjötta sæti. Eftir hádegi gekk þeim enn betur og á endanum höfnuðu þeir í fimmta sæti sem verður að teljast ljómandi góður árangur þar sem 19 lið voru í þessum styrkleikaflokki.
Öll aðstaða var til fyrirmyndar og vel haldið utan um keppnina að öllu leyti. Að sögn strákanna var það mikil og skemmtileg reynsla að taka í keppninni.
www.fas.is





Skrifa athugasemd