Fréttir
Heimaþjónustudeild Hornafjarðar
Heimaþjónustudeild Hornafjarðar

09.03.2012 Fréttir

Heimaþjónustudeild Hornafjarðar stofnuð

Undanfarna mánuði hefur veVistarið unnið að undirbúningi sameiningar búsetuþjónustu málefna fatlaðra og félagslegrar heimaþjónustu í eina deild, Heimaþjónustudeild.

Vinnan er langt komin og er áætlað að starfsmenn hefji vinnu á sameiginlegri starfsstöð Heimaþjónustudeildar og heimahjúkrunar HSSA á næstu dögum.
 
Fyrirmynd Heimaþjónustudeildarinnar á Hornafirði er komin frá Akureyri en almennt er talið að Akureyringar séu komnir einna lengst með þróun þjónustunnar. Starfsfólk félagssviðs og HSSA heimsótti Akureyringa í nóvember til að kynna sér framkvæmd og umfang þjónustunnar og tóku með sér margar góðar hugmyndir frá Akureyringum.
 
Heimaþjónusta er og verður veitt á grundvelli þarfa einstaklings eða fjölskyldu sem um hana sækir en helstu þjónustuþegar hingað til hafa verið aldraðir og fatlaðir í sjálfstæðri búsetu. Helsta markmið þjónustunnar er að gera þjónustuþegum kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður. Þjónustan hefur verið mjög góð hingað til en núna er ætlunin að gera þjónustuna formlegri auk þess sem við aukum samráð og samhæfingu þeirra sem veita heimaþjónustu og heimahjúkrun. Með auknu samráði í heimaþjónustu er stefnt að því að tryggja samfellu þjónustunnar og bæta hana því enn frekar.

Í haust er síðan áformað að stækka hina nýju Heimaþjónustudeild með tilfærslu dagvistar aldraðra og dvalarheimilis aldraða til deildarinnar. Engar breytingar verða á starfsmannahaldi vegna sameininganna núna né í haust enda búum við að frábæru starfsfólki nú þegar og er það okkar hlutverk að búa til góð starfsskilyrði fyrir starfsfólkið sem sinnir svo mikilvægu hlutverki í samfélaginu.

Ein helsta breytingin við framkvæmd þjónustunnar skv. reglunum er að nú verða gerðir tímabundnir þjónustusamningar við þjónustuþega sem verða endurskoðaðir reglulega. Umsóknir munu berast til teymis sem samanstendur af félagsmálastjóra, yfirmanns heimaþjónustudeildar og hópstjóra heimahjúkrunar og mun teymið meta umsóknir og þjónustusamninga. Með þessu nýmæli verður hægt að fylgjast betur með og stýra umfangi þjónustunnar auk þess sem samráð og samvinna félagsþjónustu og HSSA verður formlegra og meira.

Samráðshópur vegna Heimaþjónustudeildar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica