Húsfyllir af fólki á Góuhófi
Laugardagskvöldið 3. mars var haldið Góuhóf í Hofgarði í Öræfum. Grétar Már Þorkelsson annaðist veislustjórnina með hnyttnum frásögnum.
Skemmtunin tókst ljómandi vel, húsfyllir af fólki gæddi sér á kræsingum sem kokkurinn Benedikt Jónsson og aðstoðarmaður hans Daníel Ingi Jóhannsson höfðu framreitt. Stemmingin var góð og hlátrasköllin glumdu þegar nefndin steig á svið með heimatilbúin skemmtiatriði, góðlátlegt grín um nágranna og vini hittir alltaf í mark. Að vanda var dagskráin bæði leikin og sungin.
Hljómsveitin Nefndin frá Egilsstöðum hélt uppi fjörinu fram eftir nóttu og var mikið dansað.
Góunefnd 2012.
Ásdís Gunnarsdóttir og Sigurður Magnússon
Bjarki Stefánsson og Emelía Bragadóttir
Guðmundur Ögmundsson
Gunnar Sigurjónsson og Halldóra Oddsdóttir
Helena Stefánsdóttir og Teitur Birgisson
María Rós Newman
Pétur Waldorff Karlsson





Skrifa athugasemd