Meira frá Tríer
Nú er farið að líða á dvölina í Tríer. Gærdagurinn lukkaðist vel. Við brugðum okkur af bæ og skoðuðum risastóran búgarð hjá Wiesbaden sem framleiðir búvörur á lífrænum (bio), sjálfbærum grunni.
Á bænum er líka framleitt úr afurðunum og þær síðan seldar á staðnum. Þar eru 150 starfandi og daglega koma yfir 1000 manns að versla. Meðal þess sem er hægt er að kaupa er kaplamjólk, ostar, brauð, kjöt svo og alls kyns grænmeti og ávextir. Í lokin var svo snæddur hádegisverður sem að sjálfsögðu var úr lífrænu afurðunum af staðnum. Seinni hluta dagsins eyddi hópurinn í miðbænum og skoðaði meðal annars stóra verslun þar sem einungis lífrænar afurðir eru á boðstólum.
Í gær var hópurinn í skólanum að læra til hádegis og eftir hádegi var farið í gönguferð um Tríer, hina fornsögulegu rómversku höfuðborg norðursins þar sem enn úir og grúir af minjum um þetta forna heimsveldi. Það er hreint ótrúlegt að hér standi enn byggingar sem voru reistar á tímum Rómverja en sú er nú samt staðreyndin.
- Hjördís
www.fas.is





Skrifa athugasemd