Fréttir
Halldór Ólafsson
Halldór Ólafsson
Gréta Friðriksdóttir, kennari Halldórs aðstoðaði við kynninguna (mynd FAS)

01.03.2012 Fréttir

Kynning á táknmáli       

Nemendahópurinn í FAS endurspeglar samfélagið og þar eru einstaklingarnir að sjálfsögðu ólíkir.  Þó að flestir nemendur hafi íslensku sem móðurmál er það alls ekki svo með alla.

Til dæmis um það er Halldór Ólafsson sem hefur táknmál að móðurmáli því hann er heyrnarlaus og getur því ekki nýtt sér talmál eins og flestir.
Í gær hélt Halldór kynningu fyrir samnemendur sína á táknmálinu, að sjálfsögðu á táknmáli en Heiða Guðmundsdóttir táknmálstúlkur túlkaði jafnóðum. Gréta Friðriksdóttir, kennari Halldórs aðstoðaði einnig við kynninguna og er með honum á meðfylgjandi mynd.

Það eru framtíðar verðmæti í nemendum sem ganga í skóla með heyrnarlausum einstaklingi, þeir öðlast skilning á stöðu heyrnarlausra, kynnast táknmálinu og eru líklegir til að auka almennan skilning á málefnum heyrnarlausra í framtíðinni.

www.fas.is

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica