Rafhorn og Nortek fara í samstarf
Rafhorn ehf og Nortek ehf hafa gert með sér samstarfssamning um að opna Slökkvitækjaþjónustu á Hornafirði.
Starfsemin mun hefjast í apríl mánuði og vera til húsa í húsnæði Rafhorns að Bugðuleiru 6. Starfsmenn Rafhorns hafa undanfarinn mánuð verið að afla sér réttinda og þjálfunar til að starfa á þessu sviði.
Slökkvitækjaþjónustan verður mjög vel tækjum búin og allur búnaður uppfyllir ströngustu kröfur sem Mannvirkjastofnun fer fram á til reksturs slökkvitækjaþjónustu. Þjónustan verður breiðari en hingað til hefur verið á Hornafirði. En nú verður hægt að þrýstiprófa kúta og hylki ásamt því að endurhlaða kolsýrutæki og Novec slökkvikerfi. En þess má geta að Novec slökkvimiðillinn er notaður í eldvörnum í mjög mörgum skipum og bátum við Ísland.
Þessi þjónusta mun útvíkka starfssemi fyrirtækjanna nokkuð en stefnan er að bjóða upp á heildar lausnir í brunavörnum. Þ.e. uppsetningu og eftirlit með viðvörunar- og slökkvibúnaði. Á það jafnt við um fyrirtæki og heimili til sjávar og sveita.
Rafhorn ehf hefur starfað síðan 2003 og hefur stækkað hægt og rólega síðan. Í dag eru 5 starfsmenn hjá fyrirtækinu. Fyrir utan heðbundna rafverktakastarfssemi hefur fyrirtækið sérhæft sig í kælikerfum og þjónustu við þau ásamt því að reka stórt iðjuver fyrir HB Granda á Vopnafirði.
Nortek ehf hefur allt frá stofnun árið 1996 verið eitt af leiðandi fyrirtækjum á Íslandi á sviði öryggis- og viðvörunarkerfa. Í dag starfa hjá fyrirtækinu 35 starfsmenn á Íslandi og 3 í Noregi. Starfsstöðvar eru á Akureyri, Reykjavík og nú Hornarfirði í samvinnu við Rafhorn.
Það er sameiginleg stefna fyrirtækjanna að veita góða þjónustu með góðum búnaði á réttu verði og hafa gaman að því.





Skrifa athugasemd