Fréttir af Tríerförum
Hópurinn frá FAS, ME og VA kom til Tríer í eftirmiðdaginn á sunnudaginn. Þar biðu pennavinirnir og fjölskyldur þeirra. Strax á mánudag hófst dagskrá með því að íslensku krakkarnir fylgdu félögum sínum í tíma.
Eftir það tók við ratleikur þar sem íslensku krakkarnir áttu að leysa ýmsar þrautir. Eftir hádegi hófst hópavinna þar sem hópar af báðum þjóðernum vinna saman. Áherslan í samskiptaverkefninu að þessu sinni er landbúnaður.
Í gær hélt svo hópurinn til Monheim sem liggur rétt norðan við Köln. Þar er fyrirtækið Bayer Crop Science staðsett sem er stórt og mikið rannsóknarsetur m.a. í landbúnaði og er með útibú víða um heim. Í starfsstöðinni sem var skoðuð í gær vinna um 2300 manns.
Í dag var vatnsveitan fyrir Tríer skoðuð fyrri partinn og eftir hádegi lá leiðin í skólphreinsistöðina fyrir borgina. Það er víst best að vera ekkert að lýsa því sem fyrir augu bar þar en þó er hægt að segja að lyktin hafi ekki verið góð. Seinni partinn lá svo leiðin til borgarstjórans sem tók á móti hópnum í ráðhúsinu. Á morgun liggur svo leiðin til Lúxemborg.
Það er skemmst frá því að segja að hingað til hefur allt gengið ljómandi vel og hópurinn staðið sig með stakri prýði. Eftir heimsóknir þakkar hópurinn gjarnan fyrir sig með því að syngja og vekur það alltaf jafn mikla lukku.
Bestu kveðjur frá Tríer.





Skrifa athugasemd