Þingvað með lægra tilboðið í endurbætur á Heppuskóla
Á mánudag voru tilboð vegna endurbóta innanhúss á Heppuskóla opnuð og bárust tilboð frá tveim fyrirtækjum, Þingvað ehf og Eykt ehf.
Kostnaðaráætlun verksins var alls um 220 milljónir og var Þingvað með lægra tilboð eða 186 milljónir sem er 84% af kostnaðaráætlun. Eykt bauð 204 milljónir eða 93% af kostnaðaráætlun. Þingvað undir stjórn Geirs Þorsteinssonar sá m.a. um endurbætur á gamla hluta Hafnarskóla fyrir tveimur árum og síðast sáu þeir um uppbyggingu húsnæðis fyrir Svavarssafns í ráðhúsi. 60% af verkinu sem Þingvað bauð er unnið af undirverktökum s.s. málurum, rafvirkjum og pípulagningarmönnum sem allir eru heimamenn.
Verkinu verður skipt niður á næstu tvö ár og hefst 15 maí og stendur til 15. ágúst. Í sumar verður neðri hæðin tekin og næsta sumar sú efri.
Að sögn Hauks Inga Einarssonar Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs sveitarfélagsins er verið að fara yfir tilboðin og lögð verður fram tillaga um töku tilboðs á mánudaginn,n.k





Skrifa athugasemd