Fréttir
Opin vika í FAS
Opin vika í FAS
Mynd @fas

29.02.2012 Fréttir

Opin vika í FAS

Opna vikan hófst í gær í FAS. Eins og venjulega liggur hefðbundin kennsla niðri en nemendur vinna sjálfstætt að mismunandi verkefnum í sjö hópum.

Sumir þeirra hafa starfað í allan vetur en aðrir munu aðeins starfa í opnu vikunni. Þetta eru ljósmyndahópur, útvarpshópur, kvikmyndahópur, tískuhópur, skemmtanahópur og árshátíðarhópur en opnu vikunni lýkur með árshátíð á föstudaginn.

Nemendur hafa sjálfir skipulagt hópana og starfið í þeim. Það er í anda þróunarverkefnis sem í gangi hefur verið í vetur og nefnist Sjálfbært og lýðræðislegt félagslíf í FAS.

Auk hópavinnunnar eru tveir viðburðir sem allir nemendur sækja; hópefli á miðvikudaginn og í dag, mánudag, var spurningaleikur. Á meðfylgjandi mynd sjást keppendur í honum en úrslit verða kunngerð í dag miðvikudag.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica