Fréttir
Ungmennráð fundar með skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Íþrótta- og tómstundanefnd
Ungmennráð fundar með skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Mynd 1 af 3
1 2 3

16.02.2012 Fréttir

Ungmennaráð fundar með skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Innan stjórnkerfis Sveitarfélagsins Hornafjarðar er starfandi ungmennaráð. Í æskulýðslögum frá 2007 er kveðið á um að sveitarfélög stofni ungmennaráð.

Hlutverk ungmennaráðs er fyrst og fremst að vera bæjaryfirvöldum til ráðgjafar um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu. Ungmennaráð hefur verið starfandi á Hornafirði frá hausti 2008. Það hefur m.a. staðið fyrir ungmennaþingi og athugun á starfrækslu ungmennahúss í sveitarfélaginu.

Fulltrúar í Ungmennaráði Hornarfjaðar veturinn 2011 – 2012 eru; Sigfinnur Björnsson, forseti Nemendafélags FAS, Anna Mekkín Reynisdóttir, fulltrúi Umf. Sindra, Inga Ingvadóttir, óháður fulltrúi, Arnar Freyr Valgeirsson, formaður Nemendafélags Grunnskóla Hornafjarðar og Helgi Björn Hjartarson, formaður Þrykkjuráðs. Á starfstíma sínum hefur núverandi ungmennaráð fyrst og fremst unnið að því að móta nýtt erindisbréf fyrir ráðið enda kom það í ljós á fyrsta fundi ráðsins að núgildandi erindisbréf var orðið úrelt.

Ungmennaráð fundaði með skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd miðvikudaginn 15. febrúar sl. og ræddi m.a. tillögu að nýju erindisbréfi við kjörna fulltrúa í nefndinni. Á fundinum var samþykkt að vísa tillögu ungmennaráðs og skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar að nýju erindisbréfi til afgreiðslu í bæjarstjórn. Meðal helstu nýmæla í tillögunni er að nú gert er ráð fyrir því að fulltrúar í ungmennaráði fái greitt fyrir fundarsetu með sama hætti og fulltrúar í starfsnefndum á vegum sveitarfélagsins. Einnig er fjallað um jafna kynjaskiptingu í ráðinu og mikilvægi ungmennaráðs í að þjálfa ungt fólk í lýðræðislegum vinnubrögðum.

Á fundinum með skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd var að auki talað um önnur þau mál er varða ungt fólk í samfélaginu. Rætt var um þau verkefni sem ungmennaráð getur haft aðkomu að og um hlutverk þess innan stjórnkerfis sveitarfélagsins. Fundarmenn voru almennt sammála um að ungmennaráð hefði mikilvægu hlutverki að gegna innan stjórnkerfis sveitarfélagsins. Ennfremur voru fundarmenn sammála um að leita allra leiða til þess að virkja ungmennaráðið og ungt fólk almennt til þátttöku í starfsemi og ákvarðanatöku á vegum sveitarfélagsins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica