Vel heppnuð spilliefnasöfnun Áhaldahússins
Nýverið luku starfsmenn Áhaldahúss ferð sinnu um alla sýsluna þar sem þeir sóttu spilliefni á lögbýlum þ.e. rafgeyma, afgangssmurolíur og annað smotterí. Í þessari ferð söfnuðust u.þ.b 2,500 kg af rafgeymum og nálægt 1000 L af olíu.
Fyrir tveimur árum í samskonar ferð söfnuðust nálægt 8,000 kg af geymum og 3000 L af olíu. Funi fer þrisvar til fjórum sinnum á ári á alla sveitabæi sem óska og tekur landbúnaðarplast sem kemur utan af heyrúllum og fer með til endurvinnslu til Reykjavíkur.
Við síðustu áramót fluttist móttaka á skilagjaldsskildum umbúðum til Áhaldahúss þ.e. dósir og flöskur og til að gera grein fyrir umfangi á því starfi er útgreitt þennan eina og hálfa mánuð að nálgast 900,000 kr. Móttakan er opin alla daga frá 13:00 til 17:00 þannig að fólk getur losnað við allt endurvinnanlegt í einni ferð, þó svo móttakan sé ekki nákvæmlega á sama stað. Móttaka fyrir dósir og flöskur er í Áhaldahúsinu sjálfu. Á næstu dögum verður dreift til allra heimila efni til að halda betur utan um blöð og tímarit ásamt endurútgefnum upplýsingabæklingi um sorpmál.
Höldum áfram að flokka fyrir okkur.
Starfsmenn Áhaldahússins og framkvæmdasviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar.




Skrifa athugasemd