Sveinbjörg þrefaldur íslandsmeistari og Jón setti innanhús USÚ met.
Þau Sveinbjörg Zophoníasdóttir og Jón Snorri Þorsteinsson kepptu á MÍ 15-22 ára um helgina. Sveinbjörg vann í öllum greinunum sem hún keppti í.
Sveinbjörg stökk 1.64m í hástökki þar sem hún bætti sig úr 1.58m, einnig bætti sig í kúluvarpi en þar kastaði hún 12.42m en átti 12.10m svo sigraði hún í langstökki með sitt besta stökk á árinu 5.90m. Það er greinilegt að Sveinbjörg er í mjög góðu formi.
Jón Snorri Þorsteinsson keppti einnig á sama móti í kúluvarpi en þar hann gerð sér lítið fyrir og sett nýtt innanhús USÚ met með kasti upp á 13.14m og fyrir það hlaut hann silfur. Þess má geta að Jón er búin að bæta sig um tæpa 2 m í kúluvarpi í vetur.
Jón Snorri keppir fyrir USÚ en æfir með Sveinbjörgu hjá FH.
Anna Soffía Ingólfsdóttir og Alrún Irene Stephensdóttir kepptu einnig á þessu móti, Anna Soffía varð í 8. sæti í 60m grind, með tímann 11.44 sek. en í undanrásum var hún með tíman 10.63 sek. sem er persónulegt met. Alrún keppti í 800m og varð í 5 sæti á tímanum 2.59.97mín. Einnig má geta þess að Hornfirðingurinn Örvar Þór Guðnason ÚÍA varð í 2. sæti í hástökki stökk 1.88m.





Skrifa athugasemd