Frá Hestgerði að Smyrlabjörgum sunnudaginn 15.jan.
Strandganga ferðafélagsins verður farin á morgun sunnudag og verður lagt af stað frá tjaldstæðinu kl.10
Að þessu sinni er ferðinni heitið frá Hestgerði að Smyrlabjörgum og mun ferðin taka um 3 tíma auk aksturs. Það er um að gera að skella sér með í ferðina og muna að taka með hlýjan fatnað og broddar koma að gagni í þessari ferð. Að sögn Rögnu Pétursdóttur þá er ferðin ekki bara fyrir fullorðna því börn og unglingar eru velkomnir með. Ef einhverjar spurningar vakna þá er hægt að hringja í Rögnu í 662 5074.
ATH til stóð að fara þessa ferð í dag laugardag en henni var frestað til morguns vegna veðurs.





Skrifa athugasemd