Fréttir
Ásgrímur Halldórsson SF-250
Ásgrímur Halldórsson SF-250
Ásgrímur Halldórsson SF-250

04.01.2012 Fréttir

Loðnuvertíð hafin

Loðnuskipið Ásgrímur Halldórsson hjá Skinney Þinganesi er kominn á loðnumiðin norðaustur af Langanesi og fékk rúm 300 tonn af loðnu í fyrsta halinu.

Að sögn Sigurðar Ægis Birgissonar skipstjóra er loðnan góð og lítil áta í henni svo hún er góð til frystingar. Veður er gott þarna á loðnumiðunum og nokkur skip auk Ásgríms að veiðum. Sigurður skipstjóri reiknar með, ef gengur sem horfir, að koma til löndunar á föstudagsmorgun en um 12 klst. sigling er af miðunum til Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica