Fréttir
Hreindýr (úr myndasafni)
Hreindýr í Stafafellsfjöllum
Hreindýr (úr myndasafni)

01.11.2011 Fréttir

Leita allra leiða til að tryggja velferð hreindýranna

Fréttatilkynning frá bæjarráði Hornafirði

Vegna frétta um hreindýr á Mýrum í Hornafirði vill bæjarráð Hornfjarðar koma því á framfæri að ríkur vilji er til þess að leita allra leiða til að tryggja velferð dýranna en jafnframt að takmarka eins og kostur er tjón bænda vegna ágangs þeirra. 

Sú girðing sem hreindýr hafa flækst í nú í haust er frá árinu 2007 og hefur gengið úr lagi vegna ágangs þeirra.  Í landi Flateyjar á Mýrum og nærliggjandi svæðum voru að staðaldri 20 – 30 dýr í sumar og á haustdögum um 200 dýr. Það er þekkt að girðingar stöðva ekki dýrin og þau valda oft verulegu tjóni á girðingunum og ræktarlandi. Kostnaður sem af þessu hlýst lendir óbættur á landeigendum.  

Áréttað er að bændur fjarlægi ónýtar girðingar sem ekki gegna lengur sínu hlutverki og að gengið verði þannig frá öðrum girðingum að þær valdi hreindýrum sem minnstri hættu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica