Fréttir
Game of Thrones
Game of Thrones
Mynd 1 af 2
1 2

27.10.2011 Fréttir

Game of Thrones verður tekin upp í Ríki Vatnajökuls

Tökur á einum umtalaðasta þætti Bandaríkjanna um þessar mundir, Game of Thrones, munu fara fram hér í Ríki Vatnajökuls í lok nóvember n.k.

Game of Thrones hafa slegið í gegn í Bandaríkjunum en það er sjónvarpsrisinn HBO sem framleiðir þættina og hafa þeir verið sýndir á Stöð 2. Þeir eru byggðir á sögum George R. R. Martin og hafa fengið mikið lof fyrir nálgun sína. Orðrómurinn um að Ísland yrði einn af tökustöðum annarrar þáttaraðar hefur lengi verið á kreiki. Samkvæmt aðdáendasíðu þáttanna, winter-is-coming.net, stóð valið þá á milli Marokkó og Íslands og nú hefur Ísland orðið fyrir valinu.

Það er framleiðslufyrirtækið Pegasus um að þjónusta verkefnið og er nú verið að leita að aukaleikurum til að leika í þáttunum sem verða teknir upp hér. Að sögn Söru hjá Pegasus þá er verið að leita bæði að konum og körlum á svæðinu í kringum Höfn og þurfa karlarnir helst að vera skeggjaðir og vígalegir. Áhugasamir geta sent tölvupóst á sara@pegasus.is.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica