Bæjarráð telur mikilvægt að unnin verði viðbragðsáætlun vegna hugsanlegs rofs á hringveginum í framtíðinni
Á fundiBæjarráðs Hornafjarðar sem fram fór í gær var eftirfarandi samþykkt: Bæjarráð Hornafjarðar þakkar Vegagerðinni fyrir vasklega framgöngu í smíði brúar yfir Múlakvísl.
Jafnframt þakkar bæjarráð bílaleigum, björgunarsveitum, Vegagerðinni og fleiri aðilum fyrir vinnu þeirra við ferjun bíla og manna yfir Múlakvísl. Ljóst er að allar aðgerðir sem ráðist var í leiddu til þess að tjón ferðaþjónustufyrirtækja var minna en óttast var í fyrstu.
Samt sem áður er ljóst að ferðaþjónustufyrirtæki urðu af talsverðum tekjum. Í Sveitarfélaginu Hornafirði eru yfir 20 gististaðir, yfir 10 veitingastaðir og yfir 10 fyrirtæki sem gera út á afþreyingu fyrir ferðafólk. Að auki reiða verslanir og önnur þjónustufyrirtæki sig mjög á umferð ferðamanna um svæðið. Hringvegurinn er lífæð þessara fyrirtækja og lokun hans á háannatíma er fljót að leiða til tugmiljónatekjups. Vísar bæjaráð í minnisblað Háskólaseturs Háskóla Íslands þar um. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma því til leiðar að unnin verði samantekt um rauntjón ferðaþjónustunnar í sveitarfélaginu vegna rofs hringvegar um Múlakvísl.
Bæjarráð Hornafjarðar telur mikilvægt að unnin verði viðbragðsáætlun vegna hugsanlegs rofs á hringveginum í framtíðinni. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma þeirri ábendingu á framfæri við stjórnvöld.





Skrifa athugasemd