Ekki lúra of lengi
Gönguvika Ferðafélags Austur-Skaftfellinga “Ekki lúra of lengi” er hafin
Þessa vikuna stendur ferðafélagið fyrir fjölbreyttum gönguferðum alla daga fram á fimmtudag. Göngurnar eru liður í dagskrá Humarhátíðarinnar. Farið verður í tvær göngur á dag, þær eru miserfiðar, þannig að flestir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Við hvetjum sem flesta til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur.
Allar upplýsingar um ferðirnar eru á heimasíðunni okkar http://www.gonguferdir.is/
og hver ferð verður auglýst sérstaklega á SkjáVarpi.





Skrifa athugasemd