HUMARHÁTÍÐ SUMARIÐ 2011
HUMAR HUMAR HUMAR
Humarhátíð á Hornafirði verður fyrstu helgina í júlí að vanda. Hátíðin verður með nokkuð hefðbundnu sniði en nýjungarnar í ár verða verkefnið Ekki lúra of lengi á vegum Ferðafélags Austur - Skaftafellssýslu en það stendur fyrir fjölda skemmtilegra ferða vikuna fyrir Humarhátíð. Hægt er að skoða dagskrá félagsins á heimasíðunni www.gonguferdir.is
Aðrar nýjungar sem boðið er upp á er kennsla á töfrabrögðum fyrir yngstu kynslóðina en svo verða fastir liðir eins og venjulega á sínum stað á borð við skrúðgönguna, kassabílarallý Landsbankans, Humarhátíðar golfmót og skemmtidagskrá á hátíðarsviðinu bæði föstudags og laugardagskvöld.
Meðal þeirra sem fram koma á hátíðinni eru Felix Bergsson sem verður kynnir hátíðarinnar í ár, Björgvin Frans og félagar sem munu sjá um barnadagskránna og stórhljómsveitin Buff sem mun trylla lýðinn í Íþróttahúsinu á laugardagskvöldinu.
Nánari dagskrá humarhátíðar verður birt um miðjan júní.





Skrifa athugasemd